Blogg....

Jæja...hvað segið þið gott ? ég segi bara allt fínt.  Það er búið að vera nóg að gera hjá öllum undanfarið, vinna, sundleikfimi, leikhúsæfingar, handboltaæfingar og leikir.

Já ég skráði mig og dótluna í sundleikfimi og er það bara nokkuð gaman, maður tekur þó nokkuð á en samt er þetta létt og skemmtilegt.  Svo er Helga búin að vera á hverju kvöldi uppí leikhúsi að æfa og eru sýningar byrjaðar þannig að hún getur aðeins farið að slaka á á kvöldin.

Það er nú svo sem ekki mikið að frétta að öðru leyti, mamma og sys búnar að liggja í leiðindaflensu sem ég vona 7-9-13 að banki ekki uppá hér á þessu heimili.....

Nú svo er Gunni alltaf í auglýsingum og nú síðast í mjólkurauglýsingunni....og einni í Pressunni.  Ég veit svo sem ekki hvað ég að bulla meira ..... en það styttist alltaf meir og meir í sumarið þó það sé enn langt undan hehehe en við erum búin að panta okkur ferð til Tenerife í byrjun júni og getum við varla beðið eftir því og eru því allar leiðbeiningar og upplýsingar um Tenerife vel þegnar Tounge

Læt þetta duga í bili, elska ykkur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrafnhildur Sigurhansdóttir

Jæja mín kæra, mikið er ég glöð að sjá lífsmark hérna. Frábært að það sé nóg að gera hjá öllum, ykkur leiðist þá ekki á meðan :) 

Ég mæli með Tenerife, þetta verður geggjað hjá ykkur.

Tútilú... Hrafnhildur

Hrafnhildur Sigurhansdóttir, 4.2.2008 kl. 11:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband