Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Snillingur.......og líka voða sætur ;O)


Eins gott að reyna ekki um of á þolrifin í okkur konum!!

----Þegar konur eldast. 
Grein eftir Jón Jónsson 
 
Það er mikilvægt fyrir karlmenn að muna, að eftir því sem konur eldast 
verður erfiðara fyrir þær að halda sömu gæðum í húsverkunum og þegar þær 
voru ungar. Þegar þú tekur eftir þessu, reyndu ekki að æpa á hana. Sumar 
konur eru ofurviðkvæmar, og það er ekkert verra til en ofurviðkvæm kona. 
 
Ég heiti Jón. Ég ætla að segja ykkur hvernig ég tókst á við þetta ástand 
varðandi konuna mína – hana Siggu. Þegar ég settist í helgan stein fyrir 
nokkrum árum, þurfti Sigga auðvitað að fá sér heildagsvinnu meðfram 
hlutastarfinu, bæði til þess að auka tekjur heimilisins og halda sparnaði 
okkar hjóna gangandi. Fljótlega eftir að hún fór að vinna tók ég þó eftir 
að aldurinn fór að sjást á henni. 
 
Ég kem venjulega heim úr golfi á sama tíma og hún kemur heim úr vinnunni. 
Þó hún viti hvað ég er svangur, þá þarf hún næstum alltaf að hvíla sig í 
hálftíma áður en hún fer að elda matinn. Ég æpi þó ekki á hana. Í
staðinn 
segi ég henni að taka þann tíma sem hún þarf og vekja mig bara þegar 
maturinn er kominn á borðið. Ég borða venjulega hádegismat í 
“Heiðursmannagrillinu” í klúbbhúsinu þannig að það er auðvitað ekkert
á 
dagskránni að fara út að borða. 
 
Áður fyrr var Sigga vön að vaska upp um leið og við vorum búin að borða. 
Nú er hinsvegar ekkert óvenjulegt að það bíði jafnvel í nokkra tíma. Ég 
geri það sem ég get með því að minna hana á það á nærgætinn hátt að 
diskarnir þvoi sig ekki sjálfir. Ég veit að hún kann að meta þetta, þar 
sem það virðist hvetja hana til að klára uppvaskið áður en hún fer að 
sofa. 
 
Annað einkenni öldrunar er kvörtunaráráttan held ég. Til dæmis heldur hún 
því fram að það sé erfitt að finna tíma til að greiða reikningana í 
matartímanum. En strákar, við lofuðum að standa með þeim í blíðu og 
stríðu, svo ég brosi bara og býð fram hvatningu. Ég segi henni bara að 
dreifa þessu á tvo til þrjá daga. Þannig þarf hún ekki að flýta sér eins 
mikið. Ég minni hana líka á að þótt hún missi af matartímanum af og til sé 
það allt í lagi ( þið vitið hvað ég meina ). Mér finnst reyndar nærgætni 
einn af mínum betri kostum. 
 
Þegar hún vinnur einfaldari verkefni, virðist hún halda að hún þurfi 
fleiri hvíldarstundir. Hún varð til dæmis að taka pásu þegar hún var 
einungis hálfnuð með að slá blettinn. Ég reyni að vera ekki með uppistand. 
Ég er sanngjarn maður. Ég segi henni að útbúa sér stórt glas af 
nýpressuðum köldum appelsínusafa og setjast í smástund. Og þar sem hún er 
að gera þetta, bið ég hana að blanda einn fyrir mig í leiðinni. 
 
Ég veit að væntanlega lít ég út eins og dýrlingur vegna þess hvernig ég 
styð hana Siggu mína. Það er ekkert auðvelt að sýna svona mikla 
tillitssemi. Mörgum karlmönnum finnst það erfitt. Og mörgum finnst það 
alveg ómögulegt ! Það veit enginn betur en ég hversu pirrandi konur verða 
þegar þær eldast. 
 
En strákar, ef þið hafið lært það af þessarri grein að vera nærgætnari og 
minna gagnrýnir á konurnar ykkar sem eru að eldast – lít ég svo á að þetta 
hafi verið þess virði að setja á blað. Við megum ekki gleyma því að við 
fæddumst á þessa jörð til hjálpa hver öðrum. 
 
Kveðja, 
 
Jón Jónsson 
 
 
Athugasemd ritstjóra: 
 
Jón Jónsson lést skyndilega þann 27. maí sl. af blæðingum í endaþarmi. 
Samkvæmt lögregluskýrslu fannst Calloway extra löng 50 tommu Big Bertha 
golfkylfa á kafi í rassgatinu á honum, þannig að aðeins stóðu tíu cm af 
handfanginu út, og við hliðina var sleggja. 
 
Sigríður konan hans var handtekin og ákærð fyrir morðið. Kviðdómurinn sem 
eingöngu var skipaður konum var 15 mínútur að komast að niðurstöðu sem var 
þessi: Við föllumst á það sem fram kemur í vörn Sigríðar að Jón hafi 
einhvern veginn, án þess að gera sér grein fyrir því, sest ofan á eigin 
golfkylfu.

Rimlar hugans............

Jæja þá er ég loksins búin að lesa þessa bók, ég get nú ekki sagt að þetta sé besta bók sem ég hef lesið og ekki heldur næstbesta.... hmmm .......   mér fannst alltaf verið að segja frá sömu hlutunum aftur og aftur og ég skil ekki afhverju rithöfundurinn þarf alltaf að vera að segja frá sjálfum sér þegar hann er að skrifa ástarsögu annarra, og mér fannst vanta einhvernveginn endi á þetta, hvernig Einar og Evu reiðir af í dag t.d. ....kannski bara ég, en allavega myndi ég ekki mæla með þessari lesningu við vini mína.  Ég eiginlega las þessa bók bara til að segja að ég hafi lesið hana og klárað hana.Woundering

Mér fannst gaman að lesa um Einar og Evu og þeirra mál, samt of mikil endurtekning, en hafði engan áhuga á að vita hvað rithöfundurinn væri að gera, hann getur bara skrifað ævisögu seinna...

 Bæ í bili, þarf að finna mér góða hasar/ástarsögu til að lesa næst, Þrúður


20 ár !!!!

Vá getiði ímyndað ykkur ? það eru 20 ár síðan ég var uppá fæðingardeild og beið eftir því að eiga fyrsta barnið mitt.Heart  Já hún Helga mín er orðin 20 ára hvorki meira né minna.  Mér finnst það alveg ótrúlegt því mér finnst ég ekki vera orðin 20 árum eldri heheheLoL

En ég óska henni innilega til hamingju með daginn sem hún er búin að vera bíða eftir svo lengi finnst henni allavega hehehe loksins orðin 20 ára segir hún.Kissing

kveðja Þrúður mamma


Blogg....

Jæja...hvað segið þið gott ? ég segi bara allt fínt.  Það er búið að vera nóg að gera hjá öllum undanfarið, vinna, sundleikfimi, leikhúsæfingar, handboltaæfingar og leikir.

Já ég skráði mig og dótluna í sundleikfimi og er það bara nokkuð gaman, maður tekur þó nokkuð á en samt er þetta létt og skemmtilegt.  Svo er Helga búin að vera á hverju kvöldi uppí leikhúsi að æfa og eru sýningar byrjaðar þannig að hún getur aðeins farið að slaka á á kvöldin.

Það er nú svo sem ekki mikið að frétta að öðru leyti, mamma og sys búnar að liggja í leiðindaflensu sem ég vona 7-9-13 að banki ekki uppá hér á þessu heimili.....

Nú svo er Gunni alltaf í auglýsingum og nú síðast í mjólkurauglýsingunni....og einni í Pressunni.  Ég veit svo sem ekki hvað ég að bulla meira ..... en það styttist alltaf meir og meir í sumarið þó það sé enn langt undan hehehe en við erum búin að panta okkur ferð til Tenerife í byrjun júni og getum við varla beðið eftir því og eru því allar leiðbeiningar og upplýsingar um Tenerife vel þegnar Tounge

Læt þetta duga í bili, elska ykkur


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband