Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008
Brúðkaup 080808
8.8.2008 | 11:15
Já þetta virðist vera vinsæll dagur til brúðkaupa, allavega þekki ég 2 pör sem ætla að láta pússa sig saman í dag og óska ég þeim að sjálfsögðu innilega til hamingju með þennan merkisdag.
En frændi minn Jón Sölvi og unnusta hans, hún Gaua, þau ætla að gifta sig í dag á Höfn, eins ætla vinir okkar, Jón Hörður og Lena að gifta sig í dag á Sauðárkróki. Við verðum með þeim öllum í huganum.
Tengdapabbi ætlar að halda uppá 70 ára afmælið sitt á morgun og ætlar kokkurinn í fjölskyldunni að grilla eitthvað gott fyrir stórfjölskylduna og ég hlakka mikið til að sjá hvað hún ætlar að galdra með sínum kokkamætti
Kveð í bili, Þrúður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)