Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Landsliðið !!!

Jæja ... vitiði hvað ?

Hann sonur minn var valinn í úrtakshóp fyrir 1992 landslið karla Cool

Við erum auðvitað mjög stollt af honum og meira segja Gunni sagði "ertekki að djóka, drengurinn búinn að toppa kallinn bara" þegar ég hringdi í hann í dag til að segja honum fréttirnar Grin

Hér er slóðin: http://www.hsi.is/default.asp?cat_id=49&module_id=220&element_id=3959

En það styttist enn frekar í sólarlandaferðina margumræddu hehe eða 10 dagar þangað til.

Vildi bara segja ykkur fréttirnar, meira síðar.

koss&knús Þrúður Kissing


23 dagar.

Jæja.. það er bara kominn heill mánuður síðan ég bloggaði síðast... vá hvað tíminn flýgur hratt og það sést best á því að núna eru bara 23 dagar þangað til við förum til Tenerife og við sem pöntuðum ferðina um jólin.. Það er að sjálfsögðu komin spenna í alla eða aðallega mig og dótluna hehe feðgarnir eru svona aðeins rólegri yfir þessu öllu saman.  Ég er sú eina sem hef smá reynslu af svona sólarlandaferð frá því ég fór til Rhodos í Grikklandi 1985..Shocking.... já einmitt það er orðið soldið langt síðan sko hehehe en kominn tími núna og getum við þá loksins notað sólarvörnina sem Gunni keypti áður en þeir feðgar fóru til Svíþjóðar í fyrra með handboltaliði Boga, konan í apótekinu sagði nefnilega að það væri alltaf svo mikil sól í Gautaborg að það margborgaði sig að vera með sólarvörn en híhí það rigndi sko allan tímann.Whistling

En þessi ferð á eftir að verða svona bæði hvíldar og skemmtiferð, við höfum jú aldrei farið öll saman til útlanda, þannig að það er kominn tími til.  Vonandi á gengið eftir að lækka eitthvað áður en við förum því það er í sögulegu hámarki núna úffff.Angry

Ég veit ekki hvort nokkur annar fylgist með þessu bloggi mínu nema kannski Hrafnhildur vinkona og kannski Linda vinkona, þannig að það væri gaman að fá kannski comment eða kvitt í gestabók ef það eru einhverjir aðrir sem kíkja.Joyful

Læt þetta duga í bili en ég lofa að skella inn allavega einu bloggi áður en við förum í loftið

koss og knús á ykkur, Þrúður


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband