Blogg....
3.2.2008 | 19:36
Jæja...hvað segið þið gott ? ég segi bara allt fínt. Það er búið að vera nóg að gera hjá öllum undanfarið, vinna, sundleikfimi, leikhúsæfingar, handboltaæfingar og leikir.
Já ég skráði mig og dótluna í sundleikfimi og er það bara nokkuð gaman, maður tekur þó nokkuð á en samt er þetta létt og skemmtilegt. Svo er Helga búin að vera á hverju kvöldi uppí leikhúsi að æfa og eru sýningar byrjaðar þannig að hún getur aðeins farið að slaka á á kvöldin.
Það er nú svo sem ekki mikið að frétta að öðru leyti, mamma og sys búnar að liggja í leiðindaflensu sem ég vona 7-9-13 að banki ekki uppá hér á þessu heimili.....
Nú svo er Gunni alltaf í auglýsingum og nú síðast í mjólkurauglýsingunni....og einni í Pressunni. Ég veit svo sem ekki hvað ég að bulla meira ..... en það styttist alltaf meir og meir í sumarið þó það sé enn langt undan hehehe en við erum búin að panta okkur ferð til Tenerife í byrjun júni og getum við varla beðið eftir því og eru því allar leiðbeiningar og upplýsingar um Tenerife vel þegnar
Læt þetta duga í bili, elska ykkur
Athugasemdir
Jæja mín kæra, mikið er ég glöð að sjá lífsmark hérna. Frábært að það sé nóg að gera hjá öllum, ykkur leiðist þá ekki á meðan :)
Ég mæli með Tenerife, þetta verður geggjað hjá ykkur.
Tútilú... Hrafnhildur
Hrafnhildur Sigurhansdóttir, 4.2.2008 kl. 11:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.