2 dagar í Tenerife :)
1.6.2008 | 16:42
Jæja það styttist óðfluga í ferðina okkar til Tenerife, tengdó ætlar að skutla okkur eldsnemma á þriðjudagsmorgun. Ég er sko búin að þvo allt, og ég meina að það er ekkert óþvegið nema það sem við stöndum í hehe. Svo förum við í bankann á morgun og náum okkur í nokkrar evrur svona til að hafa í vasanum.
Bogi er búinn að vera alla helgina á æfingu með landsliði drengja og er það búið að vera svaka fjör og glaður en þreyttur drengur sem kom heim í dag
Svo reyni ég að skrifa einhverjar fréttir frá Tenerife hehe
kveðja Þrúður og viðhengin
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)